mán., 18. nóv.
|ANDRI ICELAND
Anda Rétt - Nóvember
18. nóv. 2024, 17:45 – 27. nóv. 2024, 18:45
ANDRI ICELAND, Rauðagerði 25, 108 Reykjavík, Iceland
Námskeið | Workshop
Anda rétt | Öndunarnámskeið
Af hverju öndunartækni?
Nú þegar langvarandi streita, kvíði, svefntruflanir, sjálfsofnæmissjúkdómar, kulnun og aðrir kvíðatengdir kvillar verða æ algengari út um allan heim, er kominn tími til þess að leita aftur í grunninn og gera grundvallarbreytingar fyrir fullt og allt. Góðu fréttirnar eru þær að öndun er vinsælt umræðuefni. Fólk er að verða meðvitaðra um kraft öndunartækni til að ná sem bestum árangri og öðlast betri heilsu. Að grípa til fyrirbyggjandi ráðstafana til þess að bæta eigin heilsu, byggja upp seiglu og kanna möguleika sína til fulls. Öndunartækni hefur verið þekkt í aldaraðir. Í dag eru ótal aðferðir og tækni í boði. Frá sérhæfðum nálgunum til vísindalega sannaðra aðferða. Frá öndunaræfingum sem þjóna ákveðnum tilgangi til hagnýtrar öndunar í okkar daglega lífi. En þó hafa þær í raun allar sömu meginreglur. Markmiðið er að færa okkur aftur í átt að jafnvægi. Að kjarnanum okkar. Einn andardrátt í einu. Hér og nú.
Þér verður vísað í áttina að kjarna öndunartækni. Að finna jafnvægi, líkamlega, andlega og tilfinningalega. Með því að nota samsetningu af því sem við vitum að virkar til þess að ná því besta úr hverjum andardrætti. Að gefa þér verkfærin, skilninginn, til að þú náir tökum á eigin iðkun.
"Þú getur æft allt sem þú vilt, borðað allan réttan mat, sofið 8 tíma á nóttunni. Ef þú andar ekki rétt verður þú alltaf veikur. 99% fólks eru með öndunarerfiðleika. Fólk gerir sér ekki grein fyrir skaðanum sem þau eru að valda á líkamanum sínum og heila með því að vera svona." - James Nestor, alþjóðlegur metsölubók um öndun.
Nokkrir þekktir kostir þess að stunda öndunartækni:
Andlegt og líkamlegt jafnvægi
Losar um streitu
Hámarkar vellíðan
Bætir ónæmiskerfið
Eykur orku
Bætir líkamlegt þol
Tilfinningalegt jafnvægi
Bætir svefn
Dýpri hugleiðsla
Vinnur úr áföllum
Aukin efnaskipti
Skýrir hugsu
Það skiptir máli að anda rétt.
Tölum um nokkrar gagnreyndar aðferðir sem ég kenni:
- Wim Hof Method
- viðurkenndur leiðbeinandi - Level 2
- Buteyko Clinic International
- viðurkenndur leiðbeinandi
- Oxygen Advantage
- viðurkenndur leiðbeinandi
- XPT Performance Breathing
- viðurkenndur þjálfari
Ég er oft spurður um muninn á þessum gagnreyndu aðferðum og fólk veltir oft fyrir sér hver þeirra er best. En í sannleika sagt eru þær einstakar og geta einnig unnið saman eftir einstaklingum og tilætluðum árangri fyrir andlega og líkamlega heilsu.
- Öndunartækni Wim Hof Method
er öflug öndunaræfing til að öðlast ýmsa heilsufarslega ávinninga: meiri orku, minnkað streitustig og aukið ónæmissvar til að takast á við sýkla. Sameinum þetta með kuldameðferð og hugarfari til að læra að halda sjálfum sér í jafnvægi í öllum aðstæðum. Að læra að vera í lagi sama hvað.
- Buteyko-aðferðin
leggur meiri áherslu á það hvernig við öndum og beinist að fólki með heilsufars- eða höfuðbeinavandamál sem tengjast öndun. Aðlöguð fyrir börn, unglinga og fullorðna á öllum aldri með sérstökum öndunaræfingum og aðferðum sem beitt er við sérstökum heilsufarsvandamálum.
- Oxygen Advantage þjálfun
hagræðir öndunarmynstri hjá heilbrigðu fólki, með það að markmiði að bæta endurheimt, orkustig, fókus, einbeitingu og árangur hreyfingarinnar.
Að lokum er það
XPT, sem leggur áherslu á mikil afköst í íþróttum og hvernig á að nota öndunartækni til að bæta árangur.
Það hvernig við öndum hefur sterk áhrif á efnafræðilega og lífeðlisfræðilega starfsemi líkama okkar. Magn súrefnis sem við öndum að okkur hefur áhrif á magn orkunnar sem er losuð inn í frumurnar í líkamanum. Öndun er auðveldasti og mikilvægasti hlutinn af sjálfvirka taugakerfinu sem hægt er að stjórna og stýra.
Hinar ýmsu aðferðir sem við kennum eru taldar tengjast því að draga úr einkennum sjúkdóma eins og liðagigt, MS, Parkinsonsveiki, astma, sarklíki, æðabólgu og fjölmargra sjálfsofnæmissjúkdóma.
Á þessu námskeiði lærir þú:
Farið verður dýpra í öndunartækni og hagnýta öndun.
Að skilja þín öndunarmynstur og stilla þau af eftir þörfum.
Hvernig þú nærð stjórn á streituviðbrögðum þínum og bregðast við streituvöldum á sem árangursríkastan hátt með því að nota öndunina.
Að skilja lífeðlisfræði öndunarinnar, kraft hugans og afleiðingar þess að beina fókusinum að heilbrigðari huga og líkama. Burt frá langvarandi streitu.
Að fara dýpra inn í skilninginn á mikilvægi öndunartækni. Að læra vísindin og verklega hlið réttrar öndunar og öndunaræfingar til að að bæta heilsuna.
Innifalið á námskeiðinu: Ókeypis aðgangur að Anda með Andra öndunartímum á meðan námskeiðið stendur.
Hvenær: 18.-27. nóvember. Mán & Mið kl. 17:45-18:45.
Hvar: Rauðagerði 25, 108 Rkv eða á netinu (Zoom)
*Athugið: Hugsanlega er hægt að fá endurgreiðslu frá stéttafélaginu þínu. Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar.
Miðar | Tickets
Námskeið
24.000 ISKÁ netinu (Zoom)
24.000 ISK
Total
0 ISK